Þróttur / Farmflutningar
Farmflutningar
Frá byggingarefni til heilla húsa.
Skipulagðir farmflutningar fyrir fyrirtæki, verktaka og einstaklinga um allt land.

Þróttur sinnir öruggum og skipulögðum farmflutningum fyrir fyrirtæki, verktaka og einstaklinga. Við flytjum byggingarefni, vélar, einingar og annan stóran eða óhefðbundinn farm – frá undirbúningi og fermingu til afhendingar á áfangastað.
Bílar og búnaður
Farmflutningar fyrir stór og krefjandi verkefni
Reynslumiklir bílstjórar okkar vinna með réttan búnað fyrir hvert verk. Við tökum að okkur flutning á:
- Húsum og einingahúsum í heilu lagi, ásamt vinnuskúrum.
- Byggingarefni og vélum fyrir framkvæmdir og atvinnurekstur.
- Aðföngum og landbúnaðarfarmi, þar á meðal heyrúllum.
Hvert verkefni er metið með tilliti til aðgengis, öryggis og hagkvæmustu leiðar.
Dæmi um verkefni Þróttar
Ólíkur farmur, vandaður undirbúningur
Glereiningar og hús í heilu lagi eru meðal þeirra verkefna sem Þróttur sinnir. Hafðu samband svo við getum fundið réttu lausnina fyrir verkefnið.
Næsta skref
Hvað á að flytja og hvert?
Láttu lýsingu á farminum, þyngd og mál fylgja fyrirspurn ef upplýsingar liggja fyrir. Staðsetningar, aðkoma og ósk um afhendingartíma hjálpa okkur að undirbúa flutninginn.
Vantar þig farmflutninga?
Sendu okkur upplýsingar um verkefnið. Við aðstoðum þig við að finna bíl og búnað sem henta.