Skip to main content Skip to footer

Þróttur / Kranabílar

Kranaþjónusta
Þróttar

Frá gleruppsetningu til þungra hífinga.

Réttur krani, viðeigandi búnaður og reynslumikið fólk fyrir næsta verkefni.

Kranabíll Þróttar hífir bláan bát við höfnina.

Stór rúða á sinn stað, sauna inn í garð eða þungur búnaður á byggingarstað. Verkefnin eru ólík, en eiga eitt sameiginlegt: það þarf réttan krana, viðeigandi búnað og bílstjóra sem kann til verka.

Hjá Þrótti er fjölbreyttur floti kranabíla og reynslumikið fólk sem sinnir flutningum og hífingum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við hjálpum þér að finna bíl og búnað sem henta aðstæðum og umfangi verksins.

Bílar og búnaður

Verkefnið ræður búnaðinum

Kranabíll getur bæði flutt farminn og híft honum á áfangastað. Verkefnið getur verið afhending á byggingarefni, flutningur á einingu eða aðstoð við uppsetningu. Aukabúnaðurinn eykur möguleikana enn frekar:

  • Sogskálar fyrir meðhöndlun og uppsetningu á gleri.
  • Grabbar og grjótklær fyrir efni og verkefni á lóðum og verkstöðum.
  • Brettaklær fyrir flutning og hífingu á brettavöru.
  • Mannkörfur fyrir verkefni sem krefjast aðgengis í hæð.

Búnaður og geta eru mismunandi eftir bílum. Einnig er hægt að nýta palla með gámalásum, festivagna og kerrur við flutninga. Þess vegna byrjum við á verkefninu þínu og finnum lausn sem hentar.

Kranabíll Þróttar hífir hluta úr byggingakrana á verkstað.
Hífing á verkstað með kranabíl Þróttar.

Dæmi um verkefni Þróttar

Nákvæmni á áfangastað

Við höfnina

Bátar og búnaður á milli staða

Kranaþjónustan nýtist líka við sjávarsíðuna, meðal annars við upptöku og sjósetningu minni báta, flutning á toghlerum og öðrum búnaði fyrir fiskiskip, auk löndunar á fiskafurðum.

Fjölbreytt kranavinna

Grabbavinna og aðgengi í hæð

Stundum felst verkefnið í að koma möl þangað sem hennar er þörf. Í öðrum tilvikum þarf að komast að við vinnu í hæð. Hér má sjá dæmi um hvort tveggja: grabbavinnu á lóð og mannkörfu við verkefni í hæð.

Næsta skref

Hvað er gott að hafa með í fyrirspurn?

Því skýrari sem lýsingin er, því auðveldara er að finna viðeigandi þjónustu. Þegar þú sendir fyrirspurn er gott að láta þessar upplýsingar fylgja:

  • Hvað á að flytja eða hífa? Lýstu farminum og láttu þyngd og mál fylgja ef þau liggja fyrir.
  • Hvaðan og hvert? Sendu heimilisfang eða staðsetningu og myndir af aðstæðum ef hægt er.
  • Hvar á farmurinn að lenda? Til dæmis inni á lóð, uppi á palli eða við byggingu.
  • Hvenær þarf að vinna verkið? Taktu fram óskadagsetningu og hvort samræma þurfi verkið við aðra á staðnum.

Þú þarft ekki að þekkja allan búnaðinn fyrirfram. Lýstu verkefninu í gegnum „Panta bílstjóra“ og við hjálpum þér að finna næsta skref.

Vantar þig kranaþjónustu?

Sendu okkur upplýsingar um verkefnið í gegnum pöntunarformið. Við aðstoðum þig við að finna bíl og búnað sem henta.

Panta bílstjóra →

Kranabílstjórar Þróttar