top of page

VÖRUBÍLASTÖÐIN ÞRÓTTUR

Starfsfólk Þróttar

Stjórn VBF Þróttar

  • Arnbergur Ásbjörnsson, formaður

  • Eyjólfur Þrastarsson, varaformaður

  • Þórður Adolfsson, Gjaldkeri

  • Einar Júlíusson, Ritari

  • Arnór Karlsson, Meðstjórnandi

Saga Þróttar

Stofnun Vörubílstöðvarinnar Þróttar má rekja aftur til 9.apríl árið 1931 er vörubílstjórar í Reykjavík sameinuðust í einu stéttarfélagi og ákváðu um leið að reka sameiginlega eina vörubílastöð í Reykjavík.

Saga Þróttar og félagatal áranna 1931 til 1987, skráð af Ingólfi Jónssyni frá Prestbakka, kom út í bókinni Maður og Bíll, sem var gefin út af félaginu árið 1987.

Bókin er hafsjór af fróðleik um baráttu manna er stóðu í flutningum og verklegum framkvæmdum með frumstæðum tækjum á okkar tíma mælikvarða, sem þó mörkuðu tímamót í sögu þjóðarinnar. Þar er sagan rakin í stuttu máli allt frá landsnámsöld og fram á níunda áratug síðustu aldar og um leið greint frá þeim vinnuaðferðum sem beitt hefur verið.

Vörubílstjórafélagið Þróttur er elsta félag sinnar tegundar hérlendis og um leið hið langstærsta. Félagið er með starfsaðstöðu sína á tæplega þriggja hektara lóð við Sævarhöfða í Reykjavík, þar sem bílstjórar hafa aðstöðu fyrir tæki sín og tól.

saga1.jpg
saga5.jpg
222110-011619_edited.jpg
saga2.jpg
bottom of page